North Hunt er alþjóðlegt verkefni til þriggja ára (2008-2010) sem er fjármagnað af
Norðurslóðaáætlun ESB (European Commssion’s Northern Periphery Programme). Verkefnið gengur út á þróun sjálfbærrar
skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á jaðarsvæðum á norðurslóðum. Þannig stuðlar verkefnið að fjölbreytni í
atvinnulífi og skýtur frekari stoðum undir vaxandi atvinnugrein með þróun starfsumhverfis og rekstrargrundvallar fyrirtækja. Lögð er áhersla
á hagnýta þróun í þágu rekstrar og hvernig mynda má tengsl manna í millum sem munu efla viðskiptagrunn fyrirtækja, hvetja til
þekkingar og hugmyndafærslu og þannig draga úr hindrunum sem mæta frumkvöðlum á þessu sviði. Þessi tengslanet sem mótast í
verkefninu munu einnig efla umræðu og meðvitund um málefni skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á jaðarsvæðum og þannig einnig
verða frumkvöðlum til eflingar. Til að ná þessum markmiðum verður viðskiptalíkan þróað fyrir frumkvöðla í greininni
og tæki þróuð til að vinna með veiðarnar á sjálfbæran hátt í samvinnu við mismunandi stofnanir og reglugerðarumhverfi.
Þannig verður náms og þjálfunarefni þróað og er lokamarkmið að koma því í umferð og notkun.

