North Hunt

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Útgefið efni

Ferðaþjónusta og skotveiðar á Íslandi - handbók

Efnahagsleg áhrif skotveiða á Íslandi

Fremur takmarkaðar upplýsingar eru til um efnahagsleg áhrif skotveiða á Íslandi og ennfremur eru þær upplýsingar, sem til eru, misgamlar. Vísbendingar eru til staðar um efnahagsleg áhrif skotveiðitengdrar ferðaþjónustu og  eru veiðarnar á vissum stöðum taldar hafa áhrif á efnahag og ferðaþjónustu á veiðitíma.

Hér er að finna helstu niðurstöður könnunar sem framkvæmd var í ársbyrjun 2010 meðal íslenskra skotveiðimanna. Markmiðið var að afla upplýsinga um útgjöld skotveiðimanna á árinu 2009 og meta efnahagsleg áhrif þeirra. Í könnuninni var m.a. spurt um hvaða bráð væri mest veidd, á hvaða veiðisvæði væri helst veitt, hversu oft væri farið til veiða, veiðifélaga, helstu útgjaldaliði og keypta þjónustu í veiðihéraði. Niðurstöður könnunarinnar voru notaðar til þess að meta efnahagslegan ávinning af skotveiðum í dreifbýli. Annars vegar voru efnahagsleg áhrif hreindýraveiða á Austurlandi metin og hins vegar efnahagsleg áhrif almennra skotveiða á Íslandi að undanskildum hreindýraveiðum.

Helstu niðurstöður er að finna hér (á íslensku)

Heildarniðurstöður rannsóknarinnar er að finna í skýrslunni The Economic Role of Hunting Tourism – Examples from Northern Areas, þar sem farið er yfir efnahagsleg áhrif skotveiðitengdrar ferðaþjónustu í Finnlandi, Svíþjóð, Íslandi og Skotlandi. Einnig má sjá niðurstöðurnar á íslensku í Skemmunni.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn