North Hunt á að standa fyrir sjálfbærni og ábyrga nýtingu veiðistofna. Hugmyndin er að sjálfbær skotveiðitengd
ferðaþjónusta á norðurslóðum sé í fullu samræmi við vísindalegar ráðleggingar um nýtingu veiðistofna,
sé atvinnuskapandi í dreifbýli og hafi jákvæð áhrif á viðkomandi samfélög og skilji arðinn eftir hjá
heimamönnum.
Í samvinnu við hagsmunaaðila og frumkvöðla í starfsgreininni á norðurslóðum Evrópu er verið að þróa sameiginleg markmið um sjálfbæra skotveiðitengda ferðaþjónustu sem viðskiptatækifæri í dreifbýli sem byggir á skynsamri nýtingu auðlinda í sátt við samfélagið. Þessar markmið geta nýtast frumkvöðlum til að þróa sína starfsemi í átt að sjálfbærni.
Útgangspunkturinn er skilgreining náttúrufræðingsins Scott Brainerds á sjálfbærum skotveiðum, sem hann segir að eru nýting villtra dýrastofna til lengri tíma litið án þess að gengið sé of nærri þeim. Slík nýting viðheldur líffræðilegum fjölbreytileika náttúrunnar og möguleikum dýrastofnanna til að endurnýjast eðlilega og mætir þörfum núverandi og komandi kynslóða og viðheldur einnig skotveiðunum sjálfum sem félagslega, efnahagslega og menningarlega ásættanlegri athöfn.
Drög að markmiðum um góða starfsætti er hægt að nálgast hér (á ensku)
Í öllum North Hunt löndunum má finna siðareglur félagasamtaka og hagsmunaaðila um skotveiðar og ferðaþjónustu. Hér á Íslandi má t.d. finna Siðareglur SKOTVÍS og Siðareglur leiðsögumanna með hreindýraveiðum.
Einnig má nálgast siðareglur og leiðbeiningar um góða starfshætti frá hinum North Hunt löndunum hér (á ensku)
Myndbönd um góða starfshætti
Nokkur myndbönd hafa verið sett saman sem fjalla um góða starfhætti. Í myndböndunum er sýndur ávinningur þess að viðhafa
góða starfshætti í rekstri fyrirtækja sem starfa í skotveiðitengdri ferðaþjónustu og byggja á hugmyndafræði
sjálfbærni til lengri tíma litið. Valin voru tvö fyrirtæki í skotveiðitengdri ferðaþjónustu í hverju landi (Íslandi,
Svíþjóð, Finnlandi, Skotlandi og Kanada) sem hafa sjálfbærni að leiðarljósi í rekstri sínum og geta skapað öðrum
fyrirtækjum gott fordæmi varðandi góða viðskiptahætti.
Öll myndböndin eru aðgengileg á North Hunt heimasíðunni hér
Handbók um ferðaþjónustu og skotveiðar á Íslandi
Gefin hefur verið út rafræn handbók um
ferðaþjónustu og skotveiðar á Íslandi. Í bókinni er að finna nytsamar upplýsingar fyrir aðlia í ferðaþjónustu
sem bjóða upp á skotveiðar sem afþreyingu. Hægt er að nálgast bókina hér.
Eftirlitskerfi og vöktun
Upplýsingar um eftirlitskerfi og vöktun í North Hunt löndunum er að finna hér

