North Hunt

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Félagsleg áhrif

Félagsleg sjálfbærni og samvinna eru talin vera meðal mikilvægustu þáttanna við þróun skotveiðitengdrar ferðaþjónustu.  Mjög mikilvægt er þegar nýjar starfsgreinar hasla sér völl að þær starfi í sátt og samlyndi við umhverfi sitt og samfélag (byggi á góðum félagslegum grunni) til þess að tryggja tilvistargrundvöll þeirra til lengri tíma.  Það á ekki síður við um skotveiðitengda ferðaþjónustu en ljóst er að margir hópar hafa hagsmuna að gæta við þróun slíkrar starfsemi og því er samþætting við núverandi starfsumhverfi lykilatriði fyrir starfsgreinina og að skilningur sé á félagslegum undirstöðum hennar. 

Viðtalsrannsókn um félagslegri sjálfbærni var gerð meðal hagsmunaaðila innan skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á Íslandi, í Svíþjóð, Finnlandi og Skotlandi. Gefin var út skýrsla á ensku og má nálgast hana hér. Yfirlit yfir niðurstöður í einstökum löndum og samanburð á milli landanna má nálgast hér.

Helstu niðurstöður viðtalsrannsóknarinnar á Íslandi má finna hér (á íslensku). 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn