Þriðja fréttabréf komið út
föstudagur 04.september 2009 - Lestrar 16
Þriðja tölublað fréttabréfs North Hunt er komið út. í fréttabréfinu er meðal annars sagt frá fyrstu North Hunt málstofunni sem verður haldin í Umeå í Svíþjóð dagana 28.-29. september. Á ráðstefnunni verður fjallað um félagslega sjálfbærni og áhrif hennar á uppbyggingu skotveiðitengdrar ferðaþjónustu. Meðal annars efnis í fréttabréfinu er umfjöllun um stöðu skotveiðitengdrar ferðaþjónustu í Finnlandi og um stóra alþjóðlega ráðstefnu um félagsvísindi í dreifbýli í Evrópu, sem haldin var í Vaasa í Finnlandi fyrir skemmstu. Þar var meðal annars ein málstofa eingöngu um sjálfbærar skotveiðar.
Fréttabréfið má nálgast á rafrænu formi hér.

