North Hunt

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

NORTH HUNT RÁÐSTEFNA 17.-18. NÓVEMBER ROVANIEMI, FINNLANDI

Verið velkomin á þriðju og síðustu alþjóðlegu North Hunt ráðstefnuna!
Á ráðstefnunni verður fjallað um frumkvöðlastarf í skotveiðitengdri ferðaþjónustu undir yfirskriftinni "ÓMÖGULEGT VERKEFNI? -SJÁLFBÆR SKOTVEIÐITENGD FERÐAÞJÓNUSTA" .

Fyrri dagurinn verður helgaður þróun fyrirtækja í skotveiðitengdri ferðaþjónustu og seinni daginn verður fjallað um rannsóknir á atvinnutækifærum sem leiða af skotveiðitengdri ferðaþjónustu.
Kynntar verða niðurstöður úr verkefninu og þær ræddar út frá sjónarmiðum um sjálfbærni (hagrænum, félagslegum og vistfræðilegum) og hagnýta þróun (vörur og tengslanet). Nýjar leiðbeiningar um starfsemi í skotveiðitengdri ferðaþjónustu, sem hafa verið þróaðar í North Hunt verkefninu, verða einnig prófaðar og gagnrýndar. 
Þar sem ráðstefnan stendur yfir í tvo heila daga er þátttakendum ráðlagt að nýta 16. og 19. nóvember sem ferðadaga. Sameiginlegur ráðstefnukvöldverður verður að kvöldi miðvikudags (17. nóvember). Nánari upplýsingar um skráningu verður að finna hér á heimasíðu North Hunt eða á Twitter frá og með 17. september.



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn