North Hunt

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Velkomin(n) á heimasíðuna okkar

North Hunt verkefnið er hluti af stærra samnorrænu verkefni og fékk það styrk frá Norðurslóðaáætlun ESB (European Commission´s Northern Periphery Programme). Markmið Norðurslóðaáætlunar ESB eru m.a. að hvetja til nýsköpunar og aukinnar samkeppnishæfni í dreifbýli um leið og lögð er áhersla á sjálfbærni náttúru og samfélags. Þátttökuþjóðir í North Hunt eru Finnland, Svíþjóð, Ísland, Skotland og Kanada.  Í öllum NPP verkefnum er krafist þess að mótframlag komi frá heimamönnum, sérstaklega frá atvinnulífinu en ekki akademískum stofnunum eða stjórnvöldum.  Á þann hátt tryggir sjóðurinn aðild frumkvöðla og starfandi einkafyrirtækja að verkefnunum enda markmiðið að þróa vöru eða hugmynd sem eflir atvinnulíf á svæðunum og skilur eftir sig starfsemi sem eykur hagvöxt þeirra.

Nýjustu fréttir

Málþing um skotveiðitengda ferðaþjónustu á Íslandi

Átta erindi um skotveiðar og skotveiðitengda ferðaþjónustu voru flutt á málþinginu. Á myndinni má sjá fyrirlesarana í lok málþingsins
Um 30 manns tóku þátt í málþingi um skotveiðitengda ferðaþjónustu á Íslandi sem var haldið í Háskólanum á Akureyri þann 13. desember sl. Yfirskrift málþingsins var „Skotveiðitengd ferðaþjónusta – þróunarmöguleikar í dreifðum byggðum“ og voru þar kynntar niðurstöður þeirra rannsókna  sem hafa verið gerðar í tengslum við North Hunt á Íslandi. Lesa meira

NORTH HUNT RÁÐSTEFNA 17.-18. NÓVEMBER ROVANIEMI, FINNLANDI

Verið velkomin á þriðju og síðustu alþjóðlegu North Hunt ráðstefnuna!
Á ráðstefnunni verður fjallað um frumkvöðlastarf í skotveiðitengdri ferðaþjónustu undir yfirskriftinni "ÓMÖGULEGT VERKEFNI? -SJÁLFBÆR SKOTVEIÐITENGD FERÐAÞJÓNUSTA" . Lesa meira

Áhugi á skotveiðitengdri ferðaþjónustu meðal sölu- og markaðsaðila erlendis

Mikill áhugi er á skotveiðitengdri ferðaþjónustu á Íslandi meðal sölu- og markaðsaðila í Evrópu ef marka má niðurstöður könnunar sem gerð var til að kanna markaðs- og framtíðarmöguleika skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á norðurslóðum. Könnunin var gerð í tengslum við North Hunt verkefnið, sem er alþjóðlegt verkefni um þróun sjálfbærrar skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á jaðarsvæðum á norðurslóðum. Jafnframt kom fram í könnuninni að þrátt fyrir þennan áhuga skorti söluaðila upplýsingar um hvað væri í boði í skotveiðum á Íslandi.

Niðurstöður könnunarinnar er að finna hér (á ensku)

Lesa meira

Fyrsta North Hunt málstofan

Umeå í Svíþjóð

FÉLAGSLEG SJÁLFBÆRNI SKOTVEIÐITENGDRAR FERÐAÞJÓNUSTU Á NORÐURSLÓÐUM:  NORTH HUNT MÁLSTOFA 28.—29. SEPT. Í UMEÅ, SVÍÞJÓÐ

Fyrir hönd North Hunt verkefnisins bjóðum við ykkur velkomin á fyrstu North Hunt málstofuna sem haldin verður í Umeå, Svíþjóð dagana 28.-29. september næstkomandi.
Yfirskrift þessarar ráðstefnu er félagsleg sjálfbærni og áhrif hennar á uppbyggingu skotveiðitengdrar ferðaþjónustu.  Ráðstefnunni er skipt niður í fjóra hluta:  

  1. Félagsleg sjálfbærni skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á norðurslóðum
  2. Sjálfbærni skotveiða og veiðiferðamennska
  3. Veiðiréttur og upplifun veiðimanna á eignarhaldi veiðilenda
  4. Umræður og niðurstöður

Málstofunni er ætlað að höfða til frumkvöðla í skotveiði og skotveiðitengdri ferðaþjónustu, sérstaklega frumkvöðla á norður-slóðum og annarra sem hafa áhuga á þessum málefnum eins og skotveiðimanna, landeigenda, rannsakendur, atvinnuráðgjafa og þeirra sem hafa umsjón með almennum veiðilendum.

Ef þið hafið frekari spurningar þá vinsamlegast snúið ykkur til Hjördísar Sigursteinsdóttur, netfang: hjordis@unak.is, sími: 460-8905.

Dagskrá málstofunnar er hægt að nálgast hér.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn