North Hunt verkefnið er hluti af stærra samnorrænu verkefni og fékk það styrk frá Norðurslóðaáætlun ESB (European
Commission´s Northern Periphery Programme). Markmið Norðurslóðaáætlunar ESB eru m.a. að hvetja til nýsköpunar og aukinnar samkeppnishæfni
í dreifbýli um leið og lögð er áhersla á sjálfbærni náttúru og samfélags. Þátttökuþjóðir
í North Hunt eru Finnland, Svíþjóð, Ísland, Skotland og Kanada. Í öllum NPP verkefnum er krafist þess að mótframlag komi
frá heimamönnum, sérstaklega frá atvinnulífinu en ekki akademískum stofnunum eða stjórnvöldum. Á þann hátt tryggir
sjóðurinn aðild frumkvöðla og starfandi einkafyrirtækja að verkefnunum enda markmiðið að þróa vöru eða hugmynd sem eflir
atvinnulíf á svæðunum og skilur eftir sig starfsemi sem eykur hagvöxt þeirra.

